8. september 2024
8. september 2024
Þessi frétt er meira en árs gömul
Laugardagskvöld á Ljósanótt
Lögreglan var með sýnilega löggæslu við hátíðarsvæðið og var mikill mannfjöldi samankominn. Ein líkamsárás var tilkynnt á einum af skemmistöðum bæjarins. Enginn handtekinn vegna árásarinnar en teljum okkur hafa upplýsingar um geranda. Tveir aðilar gista fangageymslur vegna ölvunar á almannafæri en annar þeirra verður jafnframt kærður fyrir ofbeldi gagnvart lögreglumönnum en viðkomandi kýldi tvo lögreglumenn í andlitið. Talsverð ölvun var á ungmennum. Lögreglan hafði afskipti af þeim og hringdi í foreldra í samstarfi við barnavernd. Heilt yfir hefur Ljósanótt gengið vel. |