Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. maí 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lagt hald á amfetamín og hnífa

Lögreglan lagði hald á amfetamín og hnífa við húsleit í austurborginni í dag. Hún tók einnig í sína vörslu talsvert af íblöndunarefnum og sterum. Húsráðandinn, karl á fertugsaldri, er meðlimur í Outlaws. Fíkniefnaleitarhundur frá tollinum aðstoðaði við húsleitina. Aðgerðin er liður í samvinnu lögregluliðanna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum sem beinist gegn skipulagðri brotastarfsemi, m.a. af hendi alþjóðlegra vélhjólahópa.