30. júní 2026
30. júní 2026
Lagt hald á 175 kg af fíkniefnum í tveimur málum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tvö umfangsmikil fíkniefnamál, en í þeim var lagt hald á samtals 175 kg af fíkniefnum. Tíu sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við málin, þrír Íslendingar og sjö erlendir ríkisborgarar, en málin er þó óskyld. Í öðru þeirra var lagt hald á 106 kg af kókaíni, en aldrei áður hefur svo mikið magn af kókaíni verið haldlagt í einni sendingu. Í hinu málinu var lagt hald á 56 kg af amfetamíni, auk annarra fíkniefna, en aldrei áður hefur svo mikið magn af amfetamíni verið haldlagt í einni sendingu.

Kókaínið, 106 kg, kom til Íslands með flutningaskipi til Straumsvíkur frá Suður-Ameríku og var falið í sjókistu þess undir skipinu. Í framhaldinu voru framkvæmdar handtökur á höfuðborgarsvæðinu og utan þess, en níu sitja í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar, þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar. Flestir mannanna eru á fimmtugsaldri, en sá yngsti í hópnum er um þrítugt og sá elsti á sextugsaldri. Þeir voru handteknir í þessari viku og þeirri síðustu. Aðgerðirnar voru unnar í nánu samstarfi við sérsveit ríkislögreglustjóra.
Amfetamínið, 56 kg, kom til Íslands með Norrænu og var falið í húsbíl, sem lögreglan fylgdi eftir. Ökumaðurinn, erlendur ríkisborgari á sextugsaldri, var handtekinn á Norðurlandi fyrr í mánuðinum, en í bílnum fundust einnig 8 kg af kókaíni, 3 kg af ketamíni, 1 kg af kristal metamfetamíni og 1 kg af bleiku kókaíni (sem er blanda af ketamíni og MDMA).
Rannsókn málanna miðar ágætlega, en hún hefur verið unnin í samstarfi nokkurra lögregluliða, auk Tollgæslunnar. Þá hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu enn fremur notið aðstoðar Europol, en vegna þessa komu þaðan tveir fulltrúar til Íslands. Embættið hefur sömuleiðis notið aðstoðar tengslafulltrúa Íslands hjá Europol vegna samskipta við önnur lögreglulið í Evrópu og utan hennar.