Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. júní 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lagningar ökumanna í Laugardalnum til fyrirmyndar

Ökumenn í Laugardal brugðust jákvæðir við þeim tilmælum lögreglu að nýta bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu á meðan landsleik Íslands og Danmörku stóð þann 4. júní síðastliðinn. Lögreglan jók eftirlit í Laugardalnum, greip inn í ef einhverjir gerðu sig líklega til að leggja ólöglega og leiðbeindi ökumönnum í laus stæði. Einungis þurfti að sekta sex ökutæki vegna ólöglegarar lagningar og er það mikil framför frá því ástandi sem þarna hefur ríkt þegar stórviðburðir hafa verið í Laugardalshöllinni.

Í kvöld, fimmtudaginn 9. júní, verður stórhljómsveitin Eagles með tónleika í Laugardalshöllinni og er búist við 10.00 tónleikagestum. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill af því tilefni góðfúslega ítreka þau tilmæli til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta bílastæðin á svæðinu í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur. Að öðrum kosti mega ökumenn búast við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5000 kr., rennur í Bílastæðasjóð.