Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. desember 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Lætur sér ekki segjast

Af einhverjum ástæðum eiga sumir ökumenn erfitt með að virða umferðarreglur. Stundum er eins og óhapp þurfi til að menn nái áttum og læri sína lexíu. Jafnvel það dugar ekki til í ákveðnum tilfellum. Þannig virðist því t.d. farið í málum 19 ára ökumanns sem lögreglan í Reykjavík stöðvaði um helgina. Bíll hans mældist á 148 km hraða á Sæbraut en leyfður hámarkshraði þar er 60. Akstur ökumannsins unga var vítaverður en hann lagði bæði sjálfan sig og aðra vegfarendur í mikla hættu. Að auki var bíll piltsins fullur af fólki í bókstaflegri merkingu en einum farþega var ofaukið í ökutækinu.

Dæmið um þennan unga ökumann er rifjað upp hér því hann hefur áður verið tekinn fyrir ofsaakstur af þessu tagi. Þá mældist bíll hans á 150 km hraða á vegarkafla þar sem leyfður hámarkshraði er 80 og því er brot hans um helgina grófara ef eitthvað er. Í fyrra skiptið var ökumaðurinn einn á ferð sem betur fer. Þá lauk ökuferð hans utan vegar eftir ofsaakstur um nokkrar götur borgarinnar. Þess má geta að ökumaðurinn sem hér um ræðir hefur fleiri umferðarlagabrot á samviskunni. Það nýjasta mun kosta hann að lágmarki ökuleyfissviptingu í þrjá mánuði og 110 þúsund króna sekt.

Engu að síður getur þessi ökumaður hrósað happi. Ennþá hefur hann engan slasað í umferðinni. Haldi hann hins vegar uppteknum hætti er ljóst að það endar með skelfingu og þá verður skaðinn óbætanlegur.