Fara beint í efnið

5. ágúst 2026

Kynningarbæklingur um þjóðaratkvæðagreiðslu

Landskjörstjórn hefur hafið dreifingu á kynningarbæklingi um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.

Landskjörstjórn á samkvæmt kosningalögum að standa fyrir víðtækri kynningu á því málefni sem borið er undir þjóðaratkvæði.

Landskjörstjórn hefur gefið út kynningarbæklinginn “Hvað viltu vita?” um málefnið og er dreifing hans nú hafin. Bæklingurinn á að berast á öll heimili landsins á næstu vikum.

Í þjóðaratvæðagreiðslunni verður spurt um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Svarkostir á kjörseðlinum verða já og nei.

Í bæklingnum er leitast við að skýra á aðgengilegan hátt ýmis atriði sem varða þjóðaratkvæðagreiðsluna og hvað hvor svarkostur í þjóðaratkvæðagreiðslunni muni hafa í för með sér.

Rafræn útgáfa bæklingsins, ásamt frekara kynningarefni landskjörstjórnar, táknmálstúlkað efni og auðlesið mál verður aðgengilegt á kynningarvef landskjörstjórnar kosning.is.