18. ágúst 2025
18. ágúst 2025
Kynning á rannsóknarverkefnum Vinnuverndarsjóðs
Vinnueftirlitið stendur, fimmtudaginn 28. ágúst næstkomandi, fyrir morgunfundi þar sem kynntar verða niðurstöður rannsóknarverkefna sem hlutu styrk úr Vinnuverndarsjóði vorið 2024. Einnig mun félags- og húsnæðismálaráðherra veita styrki til þeirra verkefna sem hlutu úthlutun árið 2025.

Vinnuverndarsjóður er samstarfsverkefni félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Vinnueftirlitsins. Honum er ætlað að styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði. Fyrstu styrkir úr sjóðnum voru veittir árið 2024.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mun veita styrki til þeirra verkefna sem hlutu úthlutun árið 2025 en einnig verða kynntar niðurstöður eftirfarandi rannsókna:
Staðsetning vinnunnar og líðan starfsfólks: Fjarvinna, staðvinna og blönduð vinna.
Dr. Thamar Heijstra og Dr. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, Háskóla Íslands.Sjálfvirkni- og snjallvæðing: Bölvun eða blessun fyrir velferð starfsfólks?
Dr. Arney Einarsdóttir Háskólanum á Bifröst og Dr. Katrín Ólafsdóttir Háskólanum í Reykjavík.Álagsþættir í starfsumhverfi og kulnun meðal hjúkrunarfræðinga á Landspítala.
Dr. Guðný Gústafsdóttir Háskóla Íslands og Dr. Ásdís Aðalbjörg Arnalds Háskóla Íslands.Hvernig skapast góð vinnustaðamenning í leik- og grunnskólum þar sem vel gengur?
- Niðurstöður rannsóknar um reynslu kennara og skólastjórnenda.
Dr. Sigrún Gunnarsdóttir og Dr. Anna Magnea Hreinsdóttir Háskóla Íslands.Vinnuvernd fyrir nemendur af erlendum uppruna
- Hvað er mikilvægt að ræða um?
Steinunn Björk Ragnarsdóttir og Lilja Guðný Jóhannesdóttir Tækniskólanum
Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu frá klukkan 9 – 11 og eru áhugasöm hvött til þess að skrá sig með tölvupósti á netfangið: gudrun.jorgensen@ver.is fyrir lok dags 26. ágúst næstkomandi.
Aðgangur er þátttakendum að kostnaðarlausu og eru öll velkomin.