Fara beint í efnið

16. október 2026

Kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðin hlaut í fyrradag viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi.

Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni sem hefur þann tilgang að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga á Íslandi og mjög ánægjulegt að geta haldið á lofti árangri embættisins þegar kemur að jafnréttismálum. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir embættið og samfélagið allt.

Við þökkum Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna og erum stolt af því að hafa nú fengið þessa viðurkenningu árlega frá árinu 2022. María Káradóttir, settur lögreglustjóri, tók af þessu tilefni við viðurkenningarskjali fyrir hönd embættisins.

Ljósmyndari: Silla Páls