22. janúar 2025
22. janúar 2025
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kynbundinn launamunur hefur dregist saman á árabilinu 2019-2023
Kynbundinn launamunur hefur dregist saman á árabilinu 2019–2023 hvort heldur litið er til atvinnutekna, leiðrétts eða óleiðrétts launamunar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Hagstofu Íslands á launamun karla og kvenna.
Kynbundinn launamunur hefur dregist saman á árabilinu 2019–2023 hvort heldur litið er til atvinnutekna, leiðrétts eða óleiðrétts launamunar. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn Hagstofu Íslands á launamun karla og kvenna. Jafnréttismál munu flytjast til dómsmálaráðuneytisins þann 1. mars frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu en dómsmálaráðherra hefur þegar tekið við forræði málaflokksins.
Í niðurstöðum rannsóknarinnar kemur fram að á tímabilinu hafi munur á atvinnutekjum karla og kvenna minnkað um 3,6 prósentustig. Óleiðréttur launamunur á tímakaupi reglulegra heildarlauna hefur minnkað um 4,6 prósentustig og leiðréttur launamunur hefur minnkað um 0,8 prósentustig sbr. meðfylgjandi yfirlit.
Munur á atvinnutekjum
Óleiðréttur launamunur - tímakaup reglulegra heildarlauna
Leiðréttur launamunur
2019
25,5%
13,9%
4,4%
2023
21,9%
9,3%
3,6%
Leiðréttur launamunur metur hvort karlar og konur með sambærilegan bakgrunn og í sambærilegum störfum fái sambærileg laun. Leiðréttur launamunur árið 2023 var mestur meðal starfsmanna á almennum vinnumarkaði 4,5% , meðal ríkisstarfsmanna var munurinn 3,0% og meðal starfsfólks sveitarfélaga var munurinn 0,6%.
Leiðréttur launamunur
Allir
Almennur vinnumarkaður
Ríki
Sveitarfélög
2019
4,4%
5,1%
3,5%
1,8%
2023
3,6%
4,5%
3,0%
0,6%
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra er ánægð með þá jákvæðu þróun að launamunur milli kynjanna sé að jafnast. Aftur á móti telur hún að stjórnvöld þurfi alltaf að vera vakandi fyrir fjölbreyttum leiðum til að ná árangri:
„Nú felst helsta áskorunin í vanmati á hefðbundnum kvennastörfum miðað við hefðbundin karlastörf. Næstu skref eiga að vera að leiðrétta kerfisbundið vanmat á virði kvennastarfa“.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins kemur fram að áfram verði unnið að því að leiðrétta kerfisbundið vanmat á virði kvennastarfa. Ýtt hefur verið úr vör viðamikilli vinnu stjórnvalda í samvinnu við fulltrúa sveitarfélaga og helstu hagaðila á vinnumarkaði um þróun virðismatskerfis starfa í þágu launajafnréttis.
Með þróun kerfisins standa vonir til að hægt verði að draga verulega úr launabili milli hefðbundinna kvenna- og karlastétta á allra næstu árum. Stefnt er að því að ljúka þróun virðismatskerfis síðla árs 2026.
Fréttin birtist upphaflega á vef Stjórnarráðsins.