Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. febrúar 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Krafist gæsluvarðhalds yfir grunuðum vinnumansalsmanni

Lögreglustjórinn á Suðurlandi hefur lagt fyrir Héraðsdóm Suðurlands kröfu um gæsluvarðhald yfir manni sem handtekinn var í Vík í Mýrdal í gær grunaður um vinnumansal. Búist er við afstöðu dómara til kröfunnar síðar í dag. Rannsóknardeild og ákærusvið lögreglustjórans á Suðurlandi fer með rannsókn málsins og nýtur aðstoðar mansalsteymis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.