7. ágúst 2026
7. ágúst 2026
Kosningaeftirlit við þjóðaratkvæðagreiðsluna
Landskjörstjórn hefur gefið út heimildir til kosningaeftirlits við þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst nk. Helstu markmið og tilgangur kosningaeftirlits eru m.a. að auka gagnsæi við framkvæmd kosninga og efla traust kjósenda, framboða og almennings á niðurstöðum kosninga.

Landskjörstjórn hefur gefið út heimildir til kosningaeftirlits við þjóðaratkvæðagreiðsluna á grundvelli 138. gr. kosningalaga. Bresku samtökin Democracy Volunteers munu sinna kosningaeftirlitið aðrar kosningar í röð en sendinefnd frá þeim tók þátt í kosningaeftirliti við sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí sl.
Þá hefur Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE (e. Organization for Security and Co-operation in Europe, OSCE) tilkynnt að Mannréttinda- og lýðræðisstofnun ÖSE (e. Office for Democratic Institutions and Human Rights, ODIHR) sendi til landsins sérfræðingateymi vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Í júlí kom til landsins matsnefnd í forathugun til að leggja mat á undirbúning og umgjörð þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Í kjölfar forathugunarinnar gaf Mannréttinda- og lýðræðisstofnun ÖSE út skýrslu þar sem kemur fram að stofnunin lýsi yfir miklu trausti á íslensk kosningayfirvöld og getu þeirra til að annast framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Stofnunin telur þó tilefni til nánari athugunar á afmörkuðum þáttum þar sem veikleikar eru í laga- og regluverki, einkum varðandi fjármögnun kosningabaráttu, starfsemi á samfélagsmiðlum og fjölmiðlaumhverfið. Skýrsluna má nálgast hér.
Kosningaeftirlitmenn skulu tilkynna kjörstjórn á kjörstað eða talningarstað um komu sína og brottför og ber að hlíta lögum, reglugerðum og öðrum fyrirmælum og fundarreglum sem í gildi eru á hverjum stað. Landskjörstjórn gefur út sérstök skírteini fyrir þá sem fá heimild til að sinna kosningaeftirliti sem þeir skulu bera við störf sín. Yfirkjörstjórnum kjördæma og sveitarfélaga verður tilkynnt um útgefnar heimildir til kosningaeftirlits.
Landskjörstjórn fagnar komu kosningaeftirlitsmannanna og telur að heimsóknir sem þessar skapi mikilvægan lærdóm en gert er ráð fyrir að niðurstöður kosningaeftirlitsins séu opinberar og að eftirlitið fari fram í samræmi við alþjóðlega staðla á þessu sviði.