Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. apríl 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Köfunarslys í Silfru á Þingvöllum

Kl. 12:37 barst tilkynning um köfunarslys í Silfru á Þingvöllum. Lögregla frá Selfossi og sjúkrabílar þaðan auk sjúkraliðs frá SHS fóru á vettvang. Einnig var Þyrla Landhelgisgæslu kölluð til og var sjúklingurinn, sem er erlend kona á fimmtugsaldri , flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlunni. Hún andaði þá af sjálfsdáðum en meðvitund var mjög skert. Lögregala er enn á vettvangi og unnið er að rannsókn málsins. Frekari upplýsingar um tildrög þess liggja ekki fyrir.