Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. janúar 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Köfunarslys í Silfru.

Klukkan 12:42 barst lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um köfunarslys í Silfru á Þingvöllum. Fyrir liggur að þar hafi erlend kona á þrítugsaldri lent í vandræðum við köfun. Henni var bjargað á land þar sem hlúð var að henni. Konan var flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Reykjavíkurflugvöll þar sem sjúkrabifreið beið og flutti hana á Landspítalann við Hringbraut. Ekki er vitað um ástand konunnar en það er talið alvarlegt. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi rannsakar atvikið. Frekari upplýsingar er ekki hægt að veita að svo stöddu.