Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. janúar 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Klakastífla í Hvítá fyrir landi Vaðness

Í gærkvöldi fékk lögreglan á Suðurlandi tilkynningu um að klakastífla væri í farvegi Hvítár fram af landi Vaðness. Stíflan er sögð loka ós Höskuldslækjar og leggst vatn úr honum nú að sumarhúsabyggð á bökkum árinnar norðanmegin. Ekki er vitað til þess að tjón hafi orðið af. Skv. tilkynningunni hafði tilkynnandinn fyrst orðið þessa ástands var í fyrradag og í gær hafði heldur sjatnað í árfarveginum. Sveitarstjórar í Grímsnes- og Grafningshreppi, Flóahreppi og í Árborg hafa verið upplýstir um málið og verður staðan skoðuð í dag þegar bjart er orðið.

Í febrúar 2018 kom klakastífla á sama stað og flæddi þá að umræddum sumarhúsum þannig að eitthvert vatnstjón hlaust af. Sú stífla ruddi sig skömmu síðar.