1. mars 2023
1. mars 2023
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri kvaddur
Grímur Hergeirsson og Kjartan Þorkelsson
Samstarf til margra ára. Kjartan Þorkelsson ásamt Gróu Hermannsdóttur fjármálastjóra
Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri lét af störfum við embættið í gær en hann hefur verið lögreglustjóri frá stofnun embættis Lögreglustjórans á Suðurlandi þann 1. janúar 2015. Farsæll ferill hans í þágu hins opinbera spannar hins vegar mun lengri tíma eða rúm 40 ár, fyrst sem fulltrúi sýslumanns í Rangárvallasýslu 1982, síðan sem sýslumaður í Ólafsfirði, á Blönduósi og í Rangárvallasýslu og nú síðast, eins og áður sagði, lögreglustjóri á Suðurlandi.
Kjartan var kvaddur og honum þakkað heilladrjúgt samstarf af samstarfsfólki sínu í hófi sem haldið var honum til heiðurs á skrifstofu embættisins á Hvolsvelli. Lögreglumenn stóðu heiðursvörð við komu hans til fundar yfirstjórnar og í framhaldi af því vel sótt kaffisamsæti með samstarfsfólki hans.
Við starfi lögreglustjóra á Suðurlandi tekur Grímur Hergeirsson. Hann er okkur vel kunnur, hóf m.a. feril sinn sem lögreglumaður í lögreglu í Árnessýslu fyrir margt löngu og er hann boðinn velkominn til starfa.