Fara beint í efnið

31. mars 2026

Kílómetragjald: Síðasti frestur til að skrá kílómetrastöðu 1. apríl

Ef þú átt eftir að skrá kílómetrastöðuna á þínu ökutæki á þessu ári þá þarf að skrá stöðuna til að forðast vanskráningargjald. Þau sem hafa þegar skráð á þessu ári eða eiga skráningu á árinu 2025 þurfa ekkert að gera.

Ef þú átt eftir að skrá kílómetrastöðuna á þínu ökutæki á þessu ári þá þarf að skrá stöðuna til að forðast vanskráningargjald. Þau sem hafa þegar skráð á þessu ári eða eiga skráningu á árinu 2025 þurfa ekkert að gera.

Skráning kílómetrastöðu

Samkvæmt lögum um kílómetragjald á ökutæki, nr. 100/2025 þarf að skrá stöðu á akstursmæli ökutækja, óháð orkugjafa einu sinni á ári og greiða kílómetragjald fyrir hvern ekinn kílómetra.

Þar kemur einnig fram að ef skráning kílómetrastöðu liggi ekki fyrir 1. apríl 2026:

  • þurfi að fara með ökutæki í álestur hjá faggiltri skoðunarstofu ökutækja.

  • Er lagt á 20.000 kr. vanskráningargjald.

Vanskráningargjald fellt niður ef þú skráir fyrir 1. maí

Mikilvægt er að skrá aksturstöðu þeirra ökutækja í síðasta lagi 1. apríl 2026 sem ekki hafa skráð aksturstöðu á árinu 2025 og til dagsins í dag, svo komast megi hjá álagningu vanskráningargjalds.

Eftir 1. apríl 2026 þarf að láta skrá akstursstöðu hjá faggiltri skoðunarstofu. Sé það gert fyrir 1. maí 2026 fellur gjaldið niður.

Skráning á stöðu akstursmælis fer fram á mínum síðum á Ísland.is eða hjá faggildri skoðunarstofu. Jafnframt er hægt að nota snjallforritin Ísland.is eða N1 til að skrá akstursstöðu.

Nánari upplýsingar um kílómetragjald

Fyrirspurnir um kílómetragjald má senda á km@skatturinn.is

Spurt og svarað