23. október 2009
23. október 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kerruþjófar handteknir
Vegna þessa ítrekar lögreglan að hún hvetur fólk til að hafa samband þegar þýfi er annars vegar. Ennfremur er minnt á ábyrgð þess, þegar svo ber undir, sem kaupir þýfi. Í 264. gr. almennra hegningarlaga er m.a. kveðið á um eftirfarandi: Hver sem tekur við eða aflar sér eða öðrum ávinnings af broti samkvæmt lögum þessum skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Sömu refsingu skal sá sæta sem geymir eða flytur slíkan ávinning, aðstoðar við afhendingu hans eða stuðlar á annan sambærilegan hátt að því að tryggja öðrum ávinning af broti. Nú er brot ítrekað eða stórfellt og getur refsing þá orðið fangelsi allt að 4 árum. Sé brot framið af gáleysi varðar það sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum.