Fara beint í efnið

7. nóvember 2023

Kerfisvilla í heimildum til að veiða umfram aflamark í kolmunna, makríl og norsk-íslenskri síld

Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða og reglugerðum er varða veiðar á kolmunna, makríl og norsk-íslenskri síld er skipum heimilt að veiða 5% umfram aflamark sem dregst frá úthlutun næsta árs.

fiskistofa fiskar i neti mynd

Í kerfum Fiskistofu er heimildin rangt skráð sem 10% í stað 5%. Fiskistofa mun leiðrétta þessa villu mánudaginn 13. nóvember. Þeim útgerðum sem eiga heimildir í þessum tegundum er bent á að fylgjast með breytingu á aflastöðu skipa sinna í þessum tegundum og gera viðeigandi ráðstafanir. Þar sem þessi villa á sér stað í kerfum Fiskistofu mun stofnunin ekki stöðva veiðar viðkomandi skipa um sinn sem fara í umframafla í þessum tegundum við breytinguna. Fiskistofa áréttar þó að ef staða þeirra hefur ekki verið leiðrétt fyrir 15. desember næstkomandi þá mun umframafli í tegundum vera meðhöndlaður sem ólögmætur sjávarafli.