18. mars 2008
18. mars 2008
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kennsla í forgangsakstri á námsskrá Lögregluskólans
Starfshópur sem ríkislögreglustjóri skipaði um forgangsakstur lögreglubifreiða og sagt var frá hér á vefnum 28. janúar sl., undirbýr nú námskeið við Lögregluskóla ríkisins fyrir leiðbeinendur í forgangsakstri.
Nemendur á þessum hluta námskeiðsins koma flestir úr röðum lögreglumanna á höfuðborgarsvæðinu, frá ríkislögreglustjóra og Lögregluskólanum. Önnur embætti eiga þess kost að senda lögreglumenn á námskeiðið sem stendur í tvær vikur og hefst 13. maí n.k. Lögreglumenn sem ljúka þessu námskeiði verða í hópi leiðbeinenda í forgangsakstri, samkvæmt námsskrá Lögregluskólans, og munu þeir annast þjálfun lögreglumanna hjá öllum lögregluembættum þegar fram líða stundir.