Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. maí 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kennsl bornar á líkamsleifar er fundust í Vopnafirði 1. apríl sl.

Þann 1. apríl síðastliðinn fundust líkamsleifar í Vopnafirði er rekið höfðu þar á land. Í samráði við og með aðkomu kennslanefndar ríkislögreglustjóra voru þær sendar til réttarlæknisfræðilegrar rannsóknar á Landspítala og til DNA greiningar í Svíþjóð. Niðurstaða DNA greiningar liggur fyrir.

Um er að ræða líkamsleifar skipverja er féll 18. maí í fyrra fyrir borð af fiskiskipinu Erling KE-140 er það var á leið til hafnar í Vopnafirði. Í samráði við ættingja er nafn hins látna tilgreint hér en hann hét Axel Jósefsson Zarioh og var fæddur árið 2001.