8. maí 2017
8. maí 2017
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kannabisræktun stöðvuð
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði kannabisræktun í þvottahúsi í heimahúsi sl. föstudag. Húsleit var gerð að fenginni heimild og fannst þá ræktunin auk tveggja poka með kannabisefnum. Húseigandi játaði eign sína á efnunum og ræktuninni og var hann handtekinn.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-500. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.