Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. janúar 2013

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í þvottahúsi

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í vikunni kannabisræktun í húsnæði í Njarðvík. Húsleit var gerð, að fengnum dómsúrskurði. Í þvottahúsi húsnæðisins reyndist vera afstúkað rými, þar sem ræktunin fór fram. Tæplega tuttugu kannabisplöntur fundust þar, svo og tæki og tól til iðjunnar. Húsráðandi, karlmaður á þrítugsaldri, var handtekinn og játaði hann aðild að málinu. Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.