23. maí 2009
23. maí 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kannabisræktun í miðborginni – 150 plöntur haldlagðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í miðborginni um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 150 kannabisplöntur en um helmingur þeirra var á lokastigi ræktunar. Tveir karlar á fertugsaldri hafa játað aðild sína að málinu og telst það upplýst. Mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.