Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. febrúar 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Kópavogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 70 kannabisplöntur. Karl um fimmtugt var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.