Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. maí 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Kópavogi – 120 plöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Kópavogi um kvöldmatarleytið í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 120 kannabisplöntur. Karl á fertugsaldri var handtekinn og yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar. Hann hefur játað aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.