17. mars 2009
17. mars 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kannabisræktun í Kópavogi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í íbúð í Kópavogi í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 300 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar en íbúðin var undirlögð af þessari starfsemi. Í framhaldinu var framkvæmd húsleit í íbúð í Breiðholti en þar fannst talsvert af marijúana, eða vel á annað hundrað grömm. Tveir karlar á þrítugsaldri voru yfirheyrðir í tengslum við rannsóknina.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.