Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. september 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Hlíðunum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hlíðunum í Reykjavík síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 35 kannabisplöntur. Karl um fertugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.