Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. apríl 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Hafnarfirði – 70 plöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 70 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.