Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. febrúar 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 25 kannabisplöntur. Karl á þrítugsaldri hefur játað aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.