13. maí 2009
13. maí 2009
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kannabisræktun í Hafnarfirði – 230 plöntur haldlagðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði eftir hádegi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 230 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Tveir karlar á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Við húsleitir á heimilum þeirra fannst talsvert af marijúana.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.