Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. febrúar 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Hafnarfirði – 170 plöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði síðdegis á laugardag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 170 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, hefur játað aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.