Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. nóvember 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Hafnarfirði í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 25 kannabisplöntur, auk græðlinga. Húsráðandi, karl um tvítugt, viðurkenndi aðild sína að málinu.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.