27. janúar 2011
27. janúar 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kannabisræktun í Háaleitishverfi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Háaleitishverfi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 44 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.