Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. mars 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Grafarvogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Grafarvogi. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 20 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Húsráðendur, tveir karlar á þrítugsaldri, voru yfirheyrðir á vettvangi og játuðu þeir aðild sína. Málið telst upplýst.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.