Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. júlí 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Grafarvogi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Grafarvogi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 40 kannabisplöntur. Húsráðandi, karl á fertugsaldri var ekki heima þegar lögreglan kom í heimsókn og verður hann yfirheyrður síðar.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.