Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

7. september 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í fjölbýlishúsi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í austurborginni í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 10 kannabisplöntur, auk græðlinga.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.