Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. apríl 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Breiðholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í nótt. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 100 kannabisplöntur en á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Karl á fertugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.