14. september 2011
14. september 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kannabisræktun í austurborginni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í austurborginni í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 30 kannabisplöntur, auk græðlinga.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.