Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. nóvember 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun í Árbæ

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Árbæ í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 15 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Í íbúðinni var einnig lagt hald á tæplega 50 gr. af kannabisefnum. Kona á þrítugsaldri, húsráðandi á staðnum, var yfirheyrð í þágu rannsóknarinnar og sömuleiðis karl á svipuðum aldri.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.