Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. desember 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun á Seyðisfirði

Lögregumenn við embætti lögreglustjórans á Seyðisfirði gerðu í dag húsleit í húsi á Seyðisfirði að fengnum dómsúrskurði. Við húsleit fundust um 60 kannabisplöntur og græðlingar. Að auki var talsvert af laufi í þurkun. Þá var og efni tilbúið til dreifingar og sölu. Þrír menn voru handteknir vegna málsins, einn á Seyðisfirði og tveir á Vopnafirði. Þá gerðu lögreglumenn á Vopnafirði húsleit vegna málsins á sínu svæði. Við húsleitina á Seyðisfirði var fengin til aðstoðar fíkniefnahundur frá Rls og þjálfari hans.