Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. september 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun á Kjalarnesi – 50 plöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi á Kjalarnesi um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50 kannabisplöntur. Einnig var lagt hald á gróðurhúsalampa og fleiri hluti sem tengjast starfseminni.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.