Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. febrúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun – 60 plöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborginni í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 60 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar en þær vógu um 23 kg. Á sama stað var jafnframt lagt hald á um 800 grömm af kannabisefnum. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.