17. september 2010
17. september 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kannabisræktun – 60 plöntur haldlagðar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í austurborginni nýverið. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 60 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Um mjög fullkomna ræktun var að ræða og búnaðurinn eftir því. Á sama stað var einnig lagt hald á fartölvu en í henni reyndist vera óviðeigandi myndefni. Karl á fertugsaldri var yfirheyrður í tengslum við rannsókn málsins.
Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.