Fara beint í efnið

17. september 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun – 400 plöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Árbæ nýverið. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 400 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í tengslum við rannsókn málsins.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.