Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

8. október 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun – 30 plöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í kjallaraíbúð í austurborginni í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 30 kannabisplöntur og lítilræði af amfetamíni. Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Húsráðandi, karl um fertugt, játaði aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.