Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. maí 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun – 130 plöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Garðabæ í fyrrakvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 130 kannabisplöntur. Á sama stað var einnig lagt hald á nokkur hundruð grömm af kannabisefnum. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu og viðurkenndi jafnframt sölu fíkniefna.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.