Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. desember 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun – 120 plöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 120 kannabisplöntur. Húsráðandi, karl um þrítugt, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.