Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. mars 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisræktun – 120 plöntur haldlagðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í austurborginni í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 120 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.