11. júlí 2012
11. júlí 2012
Þessi frétt er meira en árs gömul
Kannabisræktanir í austurborginni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í tveimur íbúðum í sama fjölbýlishúsi í austurborginni í gær og í dag. Í annarri íbúðinni var lagt hald á rúmlega 50 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar, en í hinni reyndust vera um 20 kannabisplöntur, auk græðlinga.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.