Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. febrúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kannabisplöntur upprættar í Ölfusi

Kannabisræktun var gerð upptæk í íbúðarhúsi í Ölfusi í gærkvöldi. Lögreglumenn höfðu komist á snoðir um að ræktun væri hugsanlega í gangi í húsinu. Þegar lögrelgumenn komu að húsinu fannst greinileg kannabislykt leggja frá opnum glugga á húsinu. Enginn var í húsinu sem mun vera yfirgefið en skömmu síðar kom þar maður sem var handtekinn. Hann viðurkenndi að vera með ræktun í húsinu. Hald var lagt á ræktunarbúnað, 16 fullvaxnar plöntur og 59 sprota. Í framhaldi var gerð leit á heimili mannsins og þar fannst lítilræði af kannabisefnum. Maðurinn hefur gengist við ræktuninni og hafa einn staðið að henni. Plönturnar hafa verið sendar til frekari rannsóknar á rannsóknarstofu.